Thomas Newcomen
Útlit
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Lagt hefur verið til að færa síðuna á Newcomen-gufuvél vegna betri hentugleika nýja nafnsins. Sjá umfjöllun á spjallsíðunni. |
Thomas Newcomen var enskur uppfinningamaður þekktur fyrir uppfinningu sína, Newcomen-gufuvélina. Gufuvélar voru upphaflega smíðaðar til þess að dæla vatni úr námum þegar iðnbyltingin átti sér stað. Er þeirra frægust gufuvél James Watt, en hún var endurbót á vél Thomas Newcomen. Fólst endurbótin í að láta kælingu gufunnar, sem olli þeim undirþrýstingi sem knúði vélina, eiga sér stað í sér hólfi, sem ekki þyrfti að hita aftur áður en það var aftur fyllt gufu. Voru þessar vélar iðulega settar í mynni kolanáma, og gengu þær þar fyrir afgangskolum. Að auki smíðaði James Watt tveggja strokka gufuvél, sem gat valdið snúningshreyfingu. Greiddi það nýtingu hennar leið á fleiri sviðum, til dæmis í verksmiðjum.