Hinrik Danaprins
Eiginmaður Danadrottningar | |
---|---|
Fæddur | 11. júní 1934 |
Dáinn | 13. febrúar 2018 (83 ára) Fredensborgarhöll, Danmörk Aska hans hvílir að hluta í garðinum við Fredensborgarhöll, en að hluta var henni dreift í hafið við Danmörku. |
Þjóðerni | Fæddur Frakki |
Störf | Eiginmaður drottningar |
Þekktur fyrir | Vínrækt og kveðskap meðal annars |
Titill | Prins |
Trú | Rómversk kaþólskur til 1967 Lúterstrúar frá 1967 |
Maki | Margrét 2. Danadrottning |
Börn |
|
Foreldrar | André de Laborde de Monpezat og Renée-Yvonne Doursennot |
Hans konunglega hátign Hinrik prins (Hans Kongelige Højhed Prins Henrik á dönsku) (11. júní 1934 – 13. febrúar 2018[1]) var eiginmaður Margrétar Þórhildar Danadrottningar frá árinu 1967 til dauðadags. Hann var af frönskum aðalsættum og fæddist undir nafninu Henri de Laborde de Monpezat. Hinrik átti með Margréti synina Friðrik og Jóakim og átta barnabörn í gegnum synina.
Hinrik fæddist í héraðinu Talence í Frakklandi. Fjölskylda hans hafði lengi dvalið í Víetnam, en flutti aftur til Frakklands eftir ósigur Frakka í fyrri Indókínastyrjöldinni. Eftir að hafa hlotið menntun í Frakklandi þjónaði Hinrik í franska hernum í stríði Frakka í Alsír. Hinrik kvæntist Margréti Þórhildi í Holmen þann 10. júní 1967 og varð prins Danmerkur þegar hún tók við af föður sínum, Friðrik 9., sem einvaldur Danmerkur þann 14. janúar 1972.
Hinrik hafði vakið nokkra athygli fyrir dauða sinn vegna óánægju sinnar með hefðir dönsku konungsfjölskyldunnar, sér í lagi með það að hann skyldi vera titlaður prins fremur en konungur sem eiginmaður drottningarinnar. Því hafði hann lýst því yfir að hann vildi ekki vera grafinn við hlið eiginkonu sinnar í dómkirkjunni í Hróarskeldu eins og hefð er fyrir með maka danskra einvalda.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Hinrik Danaprins látinn“. mbl.is. 14. febrúar 2018. Sótt 14. febrúar 2018.
- ↑ „Danaprins verður ekki grafinn hjá konu sinni“. 4. ágúst 2017. Sótt 14. febrúar 2018.