Trivial Pursuit
Trivial Pursuit er borðspil þar sem leikmenn þurfa að svara spurningum um almenna þekkingu og dægurmenningu. Spilið hefur komið út í mörgum útgáfum. Spurningum er skipt upp eftir þemum, t.d. í aðalútgáfu leikarins fjalla grænmerktar spurningar um vísindi og náttúru.
Hugmynd að spilinu áttu þeir Chris Haney ljósmyndastjóri og íþróttablaðamaður Scott Abbott árið 1979 í Montréal. Eftir þeir komust að því að stafi vantaði úr Scrabble-spilinu sínu ákváðu Haney og Abbott að búa til sinn eigin leik.
Útgáfuréttindi að spilinu á bandaríska fyrirtækið Hasbro. Trivial Pursuit hefur nokkrum sinnum verið gefið út í íslenskri útgáfu en talið er ólíklegt að það komi aftur út á íslensku.[1]
Heimildir
breyta- ↑ „Trivial Pursuit kemur ekki aftur út á Íslandi“, Kjarninn, 15. desember 2017.